Páskagleði í Bláa Lóninu
Vertu með okkur yfir páskana! Við bjóðum sérstakan aðgang dagana 27. mars – 7. apríl þar sem þér gefst tækifæri til þess að fagna páskunum, vorinu og bjartari tímum á einstakan hátt.
BókaBjartir dagar
Það jafnast ekkert á við íslenskt vor. Kraftar leysast úr læðingi, dagarnir lengjast jafnt og þétt og sumarið er handan við hornið.

Innifalið
Aðgangur að Bláa Lóninu
Afnot af handklæði og baðsloppi
Silica Mud Mask á maskabarnum
Einn drykkur að eigin vali
Húðvörugjöf andvirði 14.000 kr.
Þriggja rétta máltíð á veitingastaðnum Lava ásamt glasi af Moët (20 cl)

Tryggðu þér aðgang
Gerðu vel við þig um páskana og njóttu þín í nærandi umhverfi. Í boði 27. mars - 7. apríl.
Hápunktar
Gjafir Bláa Lónsins
Þín bíður ómótstæðileg húðvörugjöf að andvirði 14.000 kr.: BL+ the cream (5 ml), BL+ eye cream (5 ml) og Silica Mud Mask (10 ml). Þú sækir gjafirnar þínar í móttöku þegar þú kemur í lónið.
Bættu við upplifunina
Bættu einstökum meðferðum við og leyfðu þér að njóta.
Nudd í vatni
Verð frá ISK 20 900
Njóttu þess að líða um í þyngdarleysi í undursamlegri náttúru. Nudd í vatni Bláa Lónsins er einstakt á heimsvísu.
Samflot
Verð frá ISK 20 950
Flotmeðferð losar um spennu og hvílir þreytta vöðva. Þú líður um í vatninu og nýtur þess að upplifa samspil líkamlegrar hvíldar, andlegrar kyrrðar og heilandi náttúru. Flotbúnaður er á staðnum.
Páskagleði
Tryggðu þér aðgang og vertu með okkur 27. mars – 7. apríl. Njótum páskanna saman og fögnum komu vorsins.
Bóka














