Bætt aðstaða, betri upplifun.
Nú standa yfir framkvæmdir við Bláa Lónið í Svartsengi með það að markmiði að bæta aðstöðu og upplifun allra okkar gesta.

Tímalína og verkefni
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá hausti 2025 og út árið 2027. Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér nýja gönguleið til og frá bílastæði og ýmsar endurbætur og uppfærslur bæði á sameiginlegum rýmum aðalbyggingarinnar og við sjálft lónið.
Áfangaskipting framkvæmdanna er hugsuð til þess að lágmarka rask gesta og við þökkum sýndan skilning á meðan á vinnu stendur.

Nú í vinnslu
Hafin er bygging nýrrar gönguleiðar frá bílastæði að aðalbyggingu. Framkvæmdirnar eru skipulagðar með tilliti til þess að gestir upplifi sem minnst rask.

Verkefni sem er lokið
Framtíðin er bæði í höndum okkar og náttúrunnar. Við höfum þegar lokið framkvæmdum við alla búningsklefa, bætt við nýju gufubaði og þurrgufu og gert kaldara lón.

